Pláneta mynduð utan sólkerfisins

Greinar eins og þessi 

http://blogs.discovermagazine.com/badastronomy/2010/06/30/another-direct-picture-of-a-planet-orbiting-an-alien-star-confirmed/#more-18231

Fá mig til að hár-reita mig yfir því að hafa ekki klárað framhaldsskóla strax svo að ég gæti verið byrjaður að læra stjarneðlisfræði.

 

En fyrir þá sem nenna ekki að lesa greinina þá fjallar hún um það  að í fyrsta skipti í sögu stjarnvísinda höfum við getað "ljós"myndað plánetu sem er á braut um aðra stjörnu með sjónauka sem er staðsettur á jörðinni. Við höfum tekið myndir af tveimur öðrum plánetum,  2M1207b 

2m1207_sep2004sem er á braut um brúnan dverg í 230 Ljós ára fjarlægð,

og 1RXS 1609b

1RXS 1609b

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

sem er á braut um stjörnuna Fomalhaut sem er í 25 ljósára fjarlægð. Þessar myndir hafa aftur á móti verið teknar með geimsjónaukum. Til að ná þessari nýju mynd var notast við 8 metra Gemini North sjónaukann á Havaí, sem telst frekar mikið afrek þar sem andrúmsloftið "blurrar" sýn okkar á alheiminn  en með nýrri tækni er hægt að jafna út þessar truflanir.

Hér kemur svo kvykindið:

exoplanet_sunlikestar

Mér finnst það alveg magnað að hægt sé að ná svona myndum.

Menn voru ekki vissir fyrst hvort um væri að ræða stjörnu í bakgrunninum eða jafnvel fjarlæga vetrarbraut en með nánari rannsóknum og smá þolinmæði komust þeir að því að þetta er pláneta sem er með massa á við 8 Júpíter reikistjörnur,.Hún er á braut um stjörnu sem heitir 1RSX J160929.1-210524 sem er örlítið minni og kaldari en sólin okkar. Hún er í U.Þ.B 500 ljósára fjarlægð 

ástæðan fyrir því að menn halda að þetta sé pláneta er þetta graf hér

gemini_1rxsb_boundVegalengdin frá stjörnu og að plánetu er á y-ásnum

og tíminn er á x-ásnum 

 

Ef depillinn væri stjarna eða vetrarbraut þá væri hún á annarri ferð og líklegast annarri stefnu en stjarnan, ef svo væri ættu deplarnir að vera við bláu línuna. En þeir passa algerlega við rauðu línuna (sem er staðsetningin á stjörnunni). það gefur til kynna að þetta sé pláneta sem er á braut um stjörnuna 

Plánetan er á braut um stjörnuna í u.þ.b 45 milljarða km fjarlægð og er frekar heit en hitinn er rakinn til þess að plánetan er ekki nema 5 milljón ára gömul og því enn að kólna

en jæja ég gæti skrifað endalaust  um þetta ef þið viljið fræðast meir þá getið þið skoðað greinina sem ég setti efst.

 

Heimildir:  http://www.badastronomy.com


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Klukk

Já, þetta er magnað.

Ég fæ samt alltaf snert af víðáttubrjálsemi þegar ég skoða svona myndir og velti fyrir mér tímanum, rúminu og stærðunum.

Klukk, 1.7.2010 kl. 02:44

2 Smámynd: Jónatan Gíslason

Já ég er alveg sammála. það liggur við að ég fái hausverk á að spá í öllu plássinu og bara öllu sem fynnst í alheiminum

Eins og Carl sagan sagði  úti í alheiminum eru hundrað milljarðir vetrarbrauta og í hverri þeirra eru um 100 milljarð stjörnur

Jónatan Gíslason, 1.7.2010 kl. 09:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband