I-D ????
7.2.2011 | 00:09
NEI !!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Loksins...
2.9.2010 | 15:22
Þá vitum við það allavega og getum hætt að vellta þessum Guð fyrir okkur
Ég verð nú að segja að ég hlakka til að fá þessa bók til að lesa. Ég hef lesið bæði The brief history of time og Universe in a nutshell og fannst þær alveg frábærar svo þessi ætti ekki að vera mikið síðri
Ljóst að Guð skapaði ekki heiminn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Það sleppur víst engin....
25.8.2010 | 19:55
Leyndarmál alheimsins þurfa að bíða kreppuna af sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Bara að kötta á spenan
7.8.2010 | 23:23
Djöfulsins bull er þetta!! Eitthvað yrði sagt ef félagsmálaráðherra eða menntamálaráðherra mundu segja bara NEI ég ætla ekki að skera svona mikið niður
Þótt kirkjan sé sjálfstæður lögaðili þá fá þeir samt mest sitt fjármagn frá ríkinu og verða (að mínu mati) bara að hlíða og spara. Persónulega finnst mér að það ætti bara alveg að Kötta á þá og leyfa þeim að sjá um þetta alveg sjálfa, það myndi allavega ekki hafa mikil áhrif á mig eða mína
Aðskilnað ríkis og kirkju takk!!!
Kirkjunni gert að spara um 9% | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Richard Feynman
18.7.2010 | 23:23
Ég held að ég bara gæti ekki verið meira sammála honum Rikka F Þetta er nokkuð nákvæm lýsing á því hvernig mér lýður þegar það kemur að hinum svokallaða "tilgang" lífsins...
Symphony of science!
4.7.2010 | 14:27
Ég hef haft áhuga á vísindum frá því að ég man eftir mér. Þegar ég var 7-8 ára þá lét ég mömmu mína taka upp fyrir mig dýralífsmyndir ef þær voru í sjónvarpinu þegar ég var að fara að sofa eða var hjá vinum mínum. David Attenborough var (og er) í miklu uppáhaldi hjá mér eftir það
Þegar ég varð eldri fór ég að hafa meiri áhuga á stjörnunum og alheiminum og var þá bent á Cosmos þættina eftir Carl Sagan og þeir höfðu mikil áhrif á áhuga minn á vísindum. Ég held að Engin maður komist með tærnar þar sem Carl sagan hefur hælana þegar kemur að því að útskýra vísindi fyrir fólki á skemmtilegan og fræðandi hátt. Ég hef eki tölu á hvað ég er búin að horfa oft á þessa þætti og fæ aldrei leið á þeim.
Ég rakst á þessi myndbönd á youtube um daginn mér til mikilla gleði þar sem þarna eru flest allar mínar hetjur
Við að horfa á þetta verð ég hálf orðlaus
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Pláneta mynduð utan sólkerfisins
1.7.2010 | 02:25
Greinar eins og þessi
Fá mig til að hár-reita mig yfir því að hafa ekki klárað framhaldsskóla strax svo að ég gæti verið byrjaður að læra stjarneðlisfræði.
En fyrir þá sem nenna ekki að lesa greinina þá fjallar hún um það að í fyrsta skipti í sögu stjarnvísinda höfum við getað "ljós"myndað plánetu sem er á braut um aðra stjörnu með sjónauka sem er staðsettur á jörðinni. Við höfum tekið myndir af tveimur öðrum plánetum, 2M1207b
sem er á braut um brúnan dverg í 230 Ljós ára fjarlægð,
og 1RXS 1609b
sem er á braut um stjörnuna Fomalhaut sem er í 25 ljósára fjarlægð. Þessar myndir hafa aftur á móti verið teknar með geimsjónaukum. Til að ná þessari nýju mynd var notast við 8 metra Gemini North sjónaukann á Havaí, sem telst frekar mikið afrek þar sem andrúmsloftið "blurrar" sýn okkar á alheiminn en með nýrri tækni er hægt að jafna út þessar truflanir.
Hér kemur svo kvykindið:
Mér finnst það alveg magnað að hægt sé að ná svona myndum.
Menn voru ekki vissir fyrst hvort um væri að ræða stjörnu í bakgrunninum eða jafnvel fjarlæga vetrarbraut en með nánari rannsóknum og smá þolinmæði komust þeir að því að þetta er pláneta sem er með massa á við 8 Júpíter reikistjörnur,.Hún er á braut um stjörnu sem heitir 1RSX J160929.1-210524 sem er örlítið minni og kaldari en sólin okkar. Hún er í U.Þ.B 500 ljósára fjarlægð
ástæðan fyrir því að menn halda að þetta sé pláneta er þetta graf hér
Vegalengdin frá stjörnu og að plánetu er á y-ásnumog tíminn er á x-ásnum
Ef depillinn væri stjarna eða vetrarbraut þá væri hún á annarri ferð og líklegast annarri stefnu en stjarnan, ef svo væri ættu deplarnir að vera við bláu línuna. En þeir passa algerlega við rauðu línuna (sem er staðsetningin á stjörnunni). það gefur til kynna að þetta sé pláneta sem er á braut um stjörnuna
Plánetan er á braut um stjörnuna í u.þ.b 45 milljarða km fjarlægð og er frekar heit en hitinn er rakinn til þess að plánetan er ekki nema 5 milljón ára gömul og því enn að kólna
en jæja ég gæti skrifað endalaust um þetta ef þið viljið fræðast meir þá getið þið skoðað greinina sem ég setti efst.
Heimildir: http://www.badastronomy.com
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.000
30.6.2010 | 21:52
Fornleifar birtast undan ís | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Jæja já
26.6.2010 | 00:31
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)